John Wall leikmaður Washington Wizards og Blake Griffin leikmaður LA Clippers hafa verið valdir bestu nýliðar aprílmánaðar í NBA deildinni. Wall á austurströndinni og Griffin á vesturströndinni.
Wall fór fyrir Wizards með 19,4 stig, 6,0 stoðsendingar og 3.0 stolna bolta að meðaltali í leik þennan mánuðinn. Griffinn var allra nýliða stigahæstur þennan mánuðinn með 23,3 stig að meðaltali í leik, 11,9 fráköst og 5,0 stoðsendingar. Hann er eini leikmaður deildarinnar sem að meðaltali gerir a.m.k. 20 stig í leik, tekur 12 fráköst og gefur 3 stoðsendingar.
Aðrir sem komu til greina í valinu þennan mánuðinn voru nýliðarnir Landry Fields hjá New York, DeMarcus Cousins hjá Sacramento og Ed Davis hjá Toronto.
Myndir/ Blake Griffin á efri myndinni er kominn í sumarfrí eftir að hafa skaffað áhugafólki um körfuknattleik kyngimögnuð tilþrif þetta tímabilið. Á neðri myndinni er John Wall sem þykir líklegur til að verða einn af sterkustu bakvörðum deildarinnar og er þegar farinn að banka á þá hurð.





