Njarðvíkingar máttu þola gríðarlega svekkjandi eins stigs tap gegn erkifjendum sínum í Grindavík í kvöld, 104–103, eftir framlengdan nágrannaslag í 4. umferð Bónus deildar karla. Lærisveinar Rúnars sýndu mikinn karakter með því að vinna upp 15 stiga forskot heimamanna í fjórða leikhluta og jafna leikinn, en máttu á endanum lúta í lægra haldi á lokasekúndum framlengingarinnar. Tapið var þeirra fjórða í röð í deildinni og leitar liðið enn að sínum fyrsta sigri.
Makye Richard fór á kostum í liði Njarðvíkur og setti niður heil 44 stig ásamt 8 stoðsendingum, og David Okeke bætti við 29 stigum og 8 fráköstum, en það dugði ekki til að ná í fyrstu stig vetrarins.
Viðtal við Rúnar Inga Erlingsson, þjálfara Njarðvíkur, má sjá í spilaranum hér að neðan.





