Grindvíkingar fögnuðu ótrúlegum eins stigs heimasigri á nágrönnum sínum úr Njarðvík, 104–103, eftir framlengdan háspennuleik í HS Orku-höllinni í kvöld. Lið Jóhanns leiddi stærstan hluta leiksins og náði mest 15 stiga forskoti í seinni hálfleik áður en gestirnir söxuðu forskotið niður og knúðu fram framlengingu. Í uppbótartímanum sýndu heimamenn hins vegar gríðarlega seiglu og innbyrtu sinn annan sigur á tímabilinu.
Daniel Mortensen leiddi Grindvíkinga með 26 stigum og Jeremy Pargo skilaði glæsilegri tvennu, 18 stigum og 10 stoðsendingum. Þá reyndist bekkur Grindavíkur gríðarlega dýrmætur en varamenn liðsins skiluðu 33 stigum gegn aðeins 6 stigum hjá Njarðvík.
Rætt var við Jóhann Ólafsson, þjálfara Grindavíkur, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.





