HomeFréttirVil fara með liðið í Evrópukeppnina

Vil fara með liðið í Evrópukeppnina

Það eru ekki margir íslenskir körfuboltaþjálfarar sem hafa orðið meistarar í efstu deild utan Íslands. Eftir því sem karfan.is kemst næst hefur einungis Jón Sigurðsson náð þeim áfanga þangað til Hrannar Hólm afrekaði það í síðustu viku, en hann þjálfar kvennalið SISU sem varð Danmerkurmeistari. Við tókum Hrannar tali í kjölfarið og byrjuðum á að spyrja hann um tímabilið. 
 
„Þessi leiktíð hefur jú verið lygasögu líkust. Ég tók við liðinu um miðja síðustu leiktíð og við náðum að hífa okkur úr botnbaráttunni og enduðum í þrjiða sætinu í deidinni. Fyrir þessa leiktíð urðu verulegar breytingar á mannskap og ekki færri en sjö nýjir leikmenn komu til liðs við okkur. Við vissum að liðið hafði burði til að vera með þeim allra bestu í Danmörku og stefndum hátt. Svo hófst leiktíðin og við bara unnum og unnum. Urðum bikarmeistarar í janúar, deildarmeistarar í mars og síðan Danmerkurmeistarar um daginn. Lékum alls 34 leiki á tímabilinu og unnum 33, þar af alla sjö í úrslitakeppninni. Þannig að segja má að árangurinn hafi verið frábær. “

Það fer ekki á milli mála að vel hefur gengið. En hverju þakkar Hrannar árangurinn?
„Fyrst og fremst snýst þetta jú um leikmennina. Við höfum breiðan hóp af duglegum stúlkum sem eru góðar í körfubolta og til í að leggja á sig. Við tókum fljótt þá stefnu að skilgreina hvernig við viljum spila og héldum okkar striki, vorum ekki að breyta miklu eða flækja málin. Ég held að það hafi hjálpað okkur. En fyrst og fremst eru það hæfileikar leikmanna sem mestu máli skipta. “

Þú talar um að skilgreina hvernig þið spilið. Hvernig körfbolta spilar SISU?
„Við tókum þá ákvörðum að leika svæðispressu allan völlinn og svæðisvörn 90% af tímanum. Ástæða þess er m.a. að 3ja stiga línan hefur verið færð aftar hér í Danmörku og hittnin að utan dettur niður. Við skilgreindum hvernig við vildum stoppa andstæðingana og héldum okkur við það. Í sókninni þá reyndum við að hafa jafnvægi í leiknum, þeas. innan og utan osfrv. Held að það hafi gengið vel, því ekkert lið skoraði meira en við, og ekkert lið fékk á sig færri stig en við. Mér finnst skipta máli að leikmennirnir skilji leikskipulagið vel og hafi trú á því. “

Nú unnuð þið alla sjö leikina í úrslitakeppninni, en hvernig voru sjálfir úrslitaleikirnir?
„Þeir voru stórskemmtilegir, frábær stemmning, fullt hús og læti. Við lékum gegn Hørsholm sem var þáverandi Danmerkurmeistari og meistari sjö af síðustu átta árum. SISU er sigursælasti klúbbur Danmerkur (11 sinnum meistari í karlaflokki og 16 sinnum í kvenna) en hefur ekki unnið titil í 13 ár, þannig að það var mikil eftirvænting í klúbbnum. Við tókum fyrsta leikinn afar sannfærandi, 71-50,  og annan leikinn einnig nokkuð örugglega, 59-50. Í síðasta leiknum var stressið allsráðandi og ekki gekk of vel að koma boltanum í körfuna. Hørsholm leikur þar að auki fantagóðan varnarleik og setur gríðarlega pressu á leikmenn, þannig að það þarf að hafa fyrir hlutunum. En stelpunum tókst að ná tökum á leiknum í seinni hálfleik og við keyrðum heim 4ra stiga sigur, 57-53 og allt varð vitlaust . Þessi leikur var stórkostlegur endir á frábærri leiktíð. Sannkallað líf og fjör. “

Já, gaman að heyra það og enn og aftur til hamingju með árangurinn. En hvað með framhaldið hjá sjálfum þér?
„Þetta er mjög skemmtilegt þegar vel gengur, það er engin spurning. En maður verður að hafa markmið og leiðir til að bæta sig, ef maður vill halda áfram. Ég mun ræða málin við stelpurnar og stjórnina (sem ég sit reyndar í) og skoða málin. Það er mikilvægt fyrir mig að fá nýjar áskoranir og því vil ég prófa að fara með liðið í Evrópukeppni, líkt og við gerðum með Keflavíkurliðið fyrir nokkrum árum. Mér er mjög minnistæð reynslan af því ævintýri, leikmenn urðu betri, liðið varð betra og öll deildin í kjölfarið. Ef við finnum leiðir til að fara í Evrópu, þá verð ég áfram, annars sé ég til.“

Þess má geta að einungis eitt félag í danskri körfuboltasögu hefur tekið þátt í Evrópukeppni kvenna en BF Copenhagen tók þátt tímabilin 1994-95 og 95-96.

Við þökkum Hrannari kærlega fyrir spjallið og óskum honum aftur til hamingju með árangurinn.

[email protected]

Mynd: SISU

Fréttir
- Auglýsing -