„Já það passar, ég var í Bergen í Noregi í tvö ár, 1991-1993 og var viðloðandi körfuboltalið Gimle bæði árin. Fyrra árið var ég titlaður aðstoðarþjálfari en aðalþjálfarinn var ungur Bandaríkjamaður sem var einnig leikmaður svo það má segja að ég hafi séð um þjálfunina. Árið eftir var ég svo gerður að aðalþjálfara og fékk til mín lettneskan leikmann, Ainars Bagatskis, sem var frábær þriggja stiga skytta. Það má geta þess að hann er orðinn landsliðsþjálfari Letta í dag og mun stýra liðinu í Litháen í Evrópukeppninni í haust.“
„Það sem var einna skemmtilegast við þegar við unnum titilinn 1993 var það í fyrsta skipti sem hann fór út fyrir Osló. Það var gaman að fá að taka þátt í slíkri upplifun.“
Mynd: Jón Eysteinsson – Jón er númer 15 á myndinni sem er af íslenska A landsliðinu 1968 en þá var Jón aðeins 17 ára.




