Viðureignir Hauka og Vals á þessu tímabili, hvort sem er í Dominosdeildinni eða Lengjubikarnum, hafa yfirleitt verið hnífjafnar og gríðarlega spennandi. Á því varð engin undantekning í kvöld er þau mættust í mikilvægum leik fyrir bæði lið í 20. umferð Dominosdeildar kvenna en liðin eru í strangri baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Valur sigraði leikinn í kvöld með mögnuðum sigur þrist frá Kristrúnu Sigurjónsdóttir í spennuþrungum fjórða leikhluta sem kom Val einu stigi yfir í 61-62.
Haukar skoruðu fyrstu körfu leiksins en eftir það kom leikkafli hjá þeim þar sem þær gátu ekki einu sinni keypt sér körfu. Valur nýtti tækifærið og skoruðu 6-0 á Hauka þannig að staðan var 2-6 eftir fjögurra mínútna leik. Þá setti Hardy nokkrar körfur en Valsstúlkur voru duglegar að sækja sér villur og komast á línuna og héldu því forystu sinni. Fanney Lind Guðmundsdóttir setti síðan sinn annan þrist í leikhlutanum og Taley Mayberry bætti síðan við fyrir Val sem voru komnar í 10-19 með tvær mínútur eftir af fyrsta leikhluta. En þær fóru mikinn fyrir Val í leikhlutanum og skoruðu 9 og 10 stig. Ívar Ásgrímsson sá sig tilneyddan til að taka leikhlé til að hrista upp í sínum konum. Leikur þeirra lagaðist aðeins fyrir vikið en Valur leiddi engu að síður með 7 stigum, 15-22, að lokum leikhlutans.
Í upphafi annars leikhluta fór Hardy á rás og skoraði fyrstu 6 stig Hauka sem unnu aðeins á Val. Staðan um miðjan leikhlutann var 23-27. Valur misnotuðu mikið af góðum færum ásamt því að brjóta það mikið á Haukum að þær voru komnar í bónus eftir rétt rúman miðjan leikhlutann. Það varð til þess að Haukum tókst að minnka muninn í aðeins 2 stig í stöðunni 27-29. En þá tóku Kristrún Sigurjónsdóttir og Mayberry við sér og sáu til þess að Valur leiddu 28-34 í hálfleik.
Haukar hófu seinni hálfleik á 5-0 og virtust ætla taka yfir en þá herti Valur vörn sína og allt fór í tjón í sókninni hjá Haukum. Ívar var fljótur að taka leikhlé. Það bar árangur og Haukar áttu aftur 5-0 kafla og komust yfir 38-37 í fyrsta skiptið í leiknum síðan í stöðunni 2-0. Það endist þó ekki lengi því Fanney og Mayberry settu 5 stig á skotstundu til að koma Val í 38-42. Þá var heldur betur komið fjör í leikinn og skiptust liðin á fjörugum sóknum til loka leikhlutans. Það voru síðan Haukar sem leiddu að honum loknum 49-48.
Spennustigið í fjórða leikhluta var gríðarlega mikið og leikurinn algjörlega í járnum allan leikhlutann. Liðin skiptust fimm sinnum á forystunni í leikhlutanum og var lokaskiptið svaðalegur þristur frá Kristrúnu þegar 22 sekúndur voru eftir af leiknum þar sem hún kom Val yfir 61-62 sem urðu lokatölur leiksins.
Mynd/ Það sannaðist enn og aftur að það er banvænt að gefa Kristrúni opið skot í enda leiks




