HomeFréttirValur jafnaði metin 1-1

Valur jafnaði metin 1-1

Valur tóku á móti löskuðum Snæfellingum í kvöld og nýttu sér það til fullnustu er þær jöfnuðu einvígið 1-1 eftir 78-66 sigur í kvöld.
 
Gestirnir byrjuðu betur og voru þær komnar í 2-7 eftir rétt tæpar þrjár mínútur. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir kom þeim síðan í 4-11 og litu þær ekkert út fyrir að vera láta kana leysið hafa áhrif á sig. Valur sóttu í sig veðrið og eftir 4 stig frá Ragheiði Benónísdóttur og 4 stig frá Kristrúnu Sigurjónsdóttir var staðan orðin 14-18. Snæfell leiddu svo 16-21 að loknum leikhlutanum.
 
Snæfell komu sér 10 stigum yfir 18-28 eftir fjórar mínútur í öðrum leikhluta áður Valur komust í gang. Leiddar áfram af Anna Alys Martin, sem skoraði 13 stig, yfirspiluðu Valsstúlkur Snæfell 23-4 það sem eftir lifði hálfleiksins. Hólmarar áttu í mesta basli með tapaða bolta og voru þær með 11 slíka í leikhlutanum og þá komnar með 17 í fyrstu tveimur. Valur leiddi því 41-32 í hálfleik.
 
Snæfell átti ennþá í vandræðum með tapaða bolta og nýttu Valsstúlkur sér það til að bæta við forystuna þeirra og voru þær komnar 14 stigum yfir 58-44 að þriðja leikhluta loknum.
 
Fjórði leikhlutinn var jafnasti leikhlutinn og skiptust liðin jafnt og þétt á körfum en forystan sem Valur voru búnar að ná sér í var Snæfellingum of mikil og vann Valur því 78-66. Tap Snæfells í kvöld ríkir gegn hinu almenna körfuboltalögmáli að liðið sem hittir og frákastar betur vinni leikinn en það voru töpuðu boltarnir sem voru banamein Snæfells í kvöld en þær voru með 31 stykki í kvöld.
 
 
 
Mynd/ Axel FInnur – Anna Alys Martin var með 38 stig, 7 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta í kvöld
Fréttir
- Auglýsing -