Heil umferð fór fram í 1. deild karla í kvöld og ekkert lát er á sigurgöngu Ísfirðinga sem skelltu ÍG í Röstinni í Grindavík. Þá náðu Skallagrímur, Höttur, Hamar og Breiðablik einnig í tvö góð stig í kvöld.
Úrslit kvöldsins í 1. deild karla:
Ármann 77-98 Skallagrímur
Birkir Heimisson gerði 21 stig í liði Ármanns og Snorri Páll Sigurðsson bætti við 16 stigum. Hjá Skallagrím var Dominique Holmes með 34 stig og 8 fráköst og Sigurður Þórarinsson bætti við 14.
Þór Akureyri 74-84 Höttur
Stefán Karel Torfason gerði 21 stig í liði Þórs í kvöld og tók 7 fráköst, Spencer Harris bætti við 17 stigum og 6 fráköstum. Í sigurliði Hattar var Michael Sloan með 23 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar og Trevon Bryant bætti við 18 stigum og 11 fráköstum.
ÍG 78-120 KFÍ
Ari Gylfason fór mikinn í liði KFÍ í kvöld með 28 stig Chris Miller-Williams bætti við 20 stigum og 13 fráköstum. Hjá ÍG var Haraldur Jón Jóhannesson með 21 stig og Ásgeir Ásgeirsson gerði 16. Fyrrum landsliðsmiðherjinn Guðmundur Bragason bætti svo við 15 stigum og 8 fráköstum.
ÍA 91-99 Hamar
Brandon Cotton gerði 33 stig í liði Hamars og gaf 4 stoðsendingar, Halldór Gunnar Jónsson, fyrrum leikmaður ÍA, gerði gömlu liðsfélögum sínum skráveifu í kvöld og setti á þá 18 stig. Hjá ÍA var Terrence Watson með 26 stig, 10 stoðsendingar og 9 fráköst og Sigurður Rúnar Sigurðsson bætti við 16 stigum.
Breiðablik 97-91 FSu
Sex leikmenn Blika gerðu 11 stig eða meira í leiknum og þeirra atkvæðamestur var Þorsteinn Gunnlaugsson með 19 stig og 16 fráköst. Næstur honum var svo Hraunar Karl Guðmundsson með 16 stig. Kjartan Atli Kjartansson spilandi þjálfari FSu setti 29 stig á rúmum 22 mínútum í kvöld. Þá var þjálfarinn einnig með 5 stolna bolta og 2 fráköst en næststigahæstur í liði FSu var Orri Jónsso með 17 stig og 7 stoðsendingar.
Mynd/ Þorsteinn Gunnar Kristjánsson – KFÍ valtaði yfir ÍG í Röstinni í kvöld.




