HomeFréttirSmart svaraði bekk Celtics með löngutöng

Smart svaraði bekk Celtics með löngutöng

Marcus Smart, leikmaður Houston Rockets, vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að hann fagnaði þriggja stiga körfu með því að sýna bekk síns gamla félags, Boston Celtics, langatöng í öruggum 109–93 heimasigri í NBA-deildinni.

Atvikið átti sér stað í fjórða leikhluta þegar Smart sallaði niður sínum öðrum þristi í röð eftir að varnarmenn Celtics höfðu skilið hann eftir galopinn fyrir utan. Að leik loknum útskýrði kappinn að látbragðið hefði verið viðbragð við stöðugum skotum og látum frá varamannabekk Boston.

„Þetta voru bara miklar tilfinningar sem höfðu safnast upp, býst ég við. Svo voru ákveðnir gæjar á bekknum að tala. Ég vissi ekki hverjir, heyrði bara að einhver sagði eitthvað, svo ég lét þá heyra það til baka,“ sagði Smart. „Þetta var sannarlega góð tilfinning og orkan var til staðar. Þeir vita hvað ég get gert og ég minnti þá á það aftur í kvöld.“

Smart lék í tæpar 20 mínútur í leiknum, skoraði átta stig, hirti fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar, en Alperen Sengün fór fyrir liðinu með 26 stig, 10 stoðsendingar og sjö fráköst. Houston-liðið hefur farið frábærlega af stað á nýju tímabili og situr á toppi Vesturdeildarinnar eftir að hafa unnið sjö af fyrstu átta leikjum sínum.

Fréttir
- Auglýsing -