Heil umferð fór fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld sem markaði upphaf síðari hluta deildarkeppninnar. Keflvíkingar gáfu ekkert eftir í toppsætinu með sigri á Fjölni eftir mikinn slag, Njarðvík burstaði Hauka, Valur nældi í tvö góð stig í Stykkishólmi og KR-ingar lögðu Hamar í Hveragerði.
Úrslit kvöldsins:
Njarðvík 87-70 Haukar
Lele Hardy og Shanae Baker-Brice gerðu báðar 20 stig í liði Njarðvíkinga en Hardy var auk þess með 12 fráköst. Þá bætti Erna Hákonardóttir við 12 stigum. Hjá Haukum var Jence Ann Rhoads með 27 stig og 6 fráköst og Íris Sverrisdóttir bætti við 18 stigum.
Snæfell 72-87 Valur
Melissa Leichlitner gerði 26 stig í liði Vals og þær Kristrún Sigurjónsdóttir og María Ben Erlingsdóttir bættu báðar við 18 stigum. Nýji leikmaður Vals, Lacey Simpson kom til landsins í dag og gerði 2 stig í leiknum og tók 2 fráköst. Hjá Snæfell var Kieraah Marlow með 26 stig og Hildur Sigurðardóttir gerði 15 stig og tók 8 fráköst.
Hamar 67-75 KR
Erica Prosser var stigahæst í liði KR með 22 stig og 5 stoðsendingar en Margrét Kara Sturludóttir splæsti svo í tröllatvennu með 14 stig og 21 frákast! Hjá Hamri var Samantha Murphy með 25 stig og 7 fráköst og Katherine Graham bætti við 23 stigum og 6 fráköstum. Íris Ásgeirsdóttir lék sinn fyrsta leik á tímabilinu með Hamri í kvöld og skoraði fimm stig ásamt því að taka tvö fráköst.
Keflavík 82-69 Fjölnir
Jaleesa Butler skilaði myndarlegri tvennu hjá Keflavík með 20 stig og 17 fráköst. Pálína María Gunnlaugsdóttir daðraði svo við þrennuna með 17 stig, 8 fráköst og 10 stoðsendingar. Hjá Fjölni var Brittney Jones með 27 stig og Katina Mandylaris bætti við 17 stigum og 22 fráköstum.
Heildarskor leikjanna:
Keflavík-Fjölnir 82-69 (26-19, 21-29, 13-9, 22-12)
Keflavík: Jaleesa Butler 20/17 fráköst/5 varin skot, Sara Rún Hinriksdóttir 19/13 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir 17/8 fráköst/10 stoðsendingar, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 16/7 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 5, Helga Hallgrímsdóttir 4, Hrund Jóhannsdóttir 1, Katrín Fríða Jóhannsdóttir 0, Lovísa Falsdóttir 0, Sandra Lind Þrastardóttir 0, Soffía Rún Skúladóttir 0, Aníta Eva Viðarsdóttir 0.
Fjölnir: Brittney Jones 27/6 fráköst, Katina Mandylaris 17/22 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 7/8 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4, Eva María Emilsdóttir 4/5 fráköst, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 4/7 fráköst, Birna Eiríksdóttir 3/6 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 3, Sigrún Anna Ragnarsdóttir 0, Margrét Helga Hagbarðsdóttir 0, Margrét Loftsdóttir 0, Erna María Sveinsdóttir 0.
Snæfell-Valur 72-87 (26-29, 15-18, 14-21, 17-19)
Snæfell: Kieraah Marlow 26/4 fráköst, Hildur Sigurdardottir 15/8 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 10/11 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 8, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 4, Björg Guðrún Einarsdóttir 4, Ellen Alfa Högnadóttir 3, Berglind Gunnarsdóttir 2, Sara Mjöll Magnúsdóttir 0, Rósa Indriðadóttir 0, Aníta Sæþórsdóttir 0.
Valur: Melissa Leichlitner 26/5 fráköst/5 stolnir, Kristrún Sigurjónsdóttir 18/4 fráköst, María Ben Erlingsdóttir 18, Guðbjörg Sverrisdóttir 11/8 fráköst, María Björnsdóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir 3, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 3/4 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 2, Lacey Katrice Simpson 2/7 fráköst, Kristín Óladóttir 0, Ragnheiður Benónísdóttir 0, Berglind Karen Ingvarsdóttir 0.
Njarðvík-Haukar 87-70 (21-13, 27-12, 26-25, 13-20)
Njarðvík: Shanae Baker-Brice 20/5 fráköst/6 stoðsendingar, Lele Hardy 20/12 fráköst, Erna Hákonardóttir 12, Petrúnella Skúladóttir 11, Ólöf Helga Pálsdóttir 9/4 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 5/5 fráköst, Ína María Einarsdóttir 4, Harpa Hallgrímsdóttir 4, Emelía Ósk Grétarsdóttir 2, Sara Dögg Margeirsdóttir 0, Eyrún Líf Sigurðardóttir 0, Ásdís Vala Freysdóttir 0.
Haukar: Jence Ann Rhoads 27/6 fráköst, Íris Sverrisdóttir 18, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9, Hope Elam 9/7 fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 2, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Sara Pálmadóttir 0/4 fráköst, Margrét Rósa Hálfdánardóttir 0, Inga Sif Sigfúsdóttir 0, Ína Salóme Sturludóttir 0, Guðrún Ósk Ámundardóttir 0/4 fráköst.
Hamar-KR 67-75 (10-21, 20-21, 10-17, 27-16)
Hamar: Samantha Murphy 25/7 fráköst, Katherine Virginia Graham 23/5 fráköst/6 stoðsendingar/8 stolnir, Marín Laufey Davíðsdóttir 10/5 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 5, Álfhildur Þorsteinsdóttir 2/11 fráköst, Kristrún Rut Antonsdóttir 2, Dagný Lísa Davíðsdóttir 0, Jenný Harðardóttir 0, Katrín Eik Össurardóttir 0, Sóley Guðgeirsdóttir 0, Rannveig Reynisdóttir 0.
KR: Erica Prosser 22/5 stoðsendingar/7 stolnir, Margrét Kara Sturludóttir 14/21 fráköst/5 stoðsendingar, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 12/6 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 10/6 fráköst/3 varin skot, Hafrún Hálfdánardóttir 6, Anna María Ævarsdóttir 6, Helga Einarsdóttir 5/4 fráköst, Rannveig Ólafsdóttir 0, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir 0, Kristbjörg Pálsdóttir 0, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 0, Helga Hrund Friðriksdóttir 0.
Mynd/ Úr safni: Sara Rún Hinriksdóttir og félagar í Keflavík sitja sem fastast á toppi deildarinnar.