HomeBónus deildinBónus deild karlaLiðsstyrkur í Keflavík fyrir leik kvöldsins

Liðsstyrkur í Keflavík fyrir leik kvöldsins

Keflvíkingar fá öflugan liðsstyrk fyrir heimsókn sína í Breiðholtið í kvöld þegar liðið mætir ÍR í Bónus deild karla, en samkvæmt félagaskiptaskrá Körfuknattleikssambands Íslands hefur sænski skotbakvörðurinn Ali Dibba fengið keppnisleyfi og verið skráður í leikmannahóp liðsins.  

Dibba kemur beint úr bandaríska háskólaboltanum þar sem hann lauk námi síðastliðið vor með hinum virta Texas A&M-háskóla í efstu deild NCAA. Á lokaári sínu þar skilaði hann 5,7 stigum og tæpum þremur fráköstum á um sextán mínútum í leik, en tímabilið á undan fór hann á kostum með Southern Illinois Salukis og setti niður 16,8 stig að meðaltali í leik. Á fjögurra ára háskólaferli sínum lék hann einnig með Chicago State og Abilene Christian.  

Svíinn er 25 ára gamall, 193 sentimetrar á hæð og getur spilað bæði sem bakvörður og vængmaður. Hann verður í leikmannahópnum hjá Keflavík í kvöld þegar flautað verður til leiks gegn ÍR í Hellinum klukkan 19:15.

Fréttir
- Auglýsing -