HomeBónus deildinBónus deild kvennaÁ heimleið úr háskólaboltanum?

Á heimleið úr háskólaboltanum?

Bakvörðurinn Vilborg Jónsdóttir hefur formlega fengið félagaskipti úr uppeldisfélagi sínu Njarðvík yfir í Val samkvæmt félagaskiptaskrá Körfuknattleikssambands Íslands.  

Vilborg hélt vestur um haf árið 2022 þar sem hún hefur stundað nám og leikið með Minot State University í bandaríska háskólaboltanum. Leikmenn halda alla jafna leikheimild sinni hjá sínu upprunalega félagi á meðan háskólanámi stendur, en þessi félagaskipti gefa skýrt til kynna að hún sé á leið heim til Íslands á nýjan leik og muni klæðast rauðu á Hlíðarenda í Bónus deildinni í vetur.  

Þetta eru mikil tíðindi fyrir Val en Vilborg hefur verið ein fremsta körfuknattleikskona síns árgangs hér á landi. Hún var algjör burðarás í öllum yngri landsliðum Íslands og fyrirliði meistaraflokks Njarðvíkur, þar sem hún fór fyrir sínu liði og fagnaði meðal annars Íslandsmeistaratitlinum með félaginu áður en hún hélt út í háskólaboltann. Hún var jafnframt valin körfubolta- og íþróttakona UMFN árið 2022 eftir frábært gengi með liðinu.

Fréttir
- Auglýsing -