Kvennalandslið Íslands hefur leik í forkeppni EuroBasket 2029 í þessum mánuði og leikur tvo mikilvæga heimaleiki í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Fyrri leikurinn fer fram laugardaginn 14. nóvember klukkan 16:00 gegn Sviss. Þremur dögum síðar, þriðjudaginn 17. nóvember klukkan 19:30, mætir íslenska liðið Aserbaísjan á sama stað.
Miðasala á báða leikina fer fram í gegnum Stubb (stubb.is), en boðið er upp á sérstakan miðapakka á báða leikina á hagstæðu verði. Frítt er inn fyrir 15 ára og yngri og verða heitar pylsur frá Bæjarins Beztu á svæðinu fyrir stuðningsfólk. KKÍ hvetur alla körfuboltaáhugamenn til að mæta á Ásvelli og fylla húsið til að styðja stelpurnar til sigurs.




