Keflavík er komið í úrslit Iceland Express deildar kvenna eftir 3-1 sigur á Íslandsmeisturum KR í einvígi liðanna. Þá gerðu Garðbæingar góða ferð í Stykkishólm í undanúrslitum Iceland Express deild karla og lögðu heimamenn í Snæfell 73-75.
Snæfell 73-75 Stjarnan
Jovan Zdravevski gerði 20 stig og tók 9 fráköst í liði Stjörnunnar og Justin Shouse bætti við 19 stigum, 5 fráköstum og 4 stoðsendingum. Hjá Snæfell var Ryan Amoroso með 19 stig og 13 fráköst.
Staðan í einvíginu: Snæfell 0-1 Stjarnan
KR 62-70 Keflavík
Marina Caran gerði 21 stig í liði Keflavíkur og Birna Valgarðsdóttir bætti við 14 stigum. Hjá KR var Margrét Kara Sturludóttir með 13 stig og Hildur Sigurðardóttir gerði 11.
Einvígið fór 3-1 fyrir Keflavík
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski: Pálína Gunnarsdóttir í baráttunni gegn Hildi Sigurðardóttur í DHL-Höllinni í kvöld.





