Lokaleikur Reykjarvíkurliðanna KR og ÍR í Lengjubikarnum bauð uppá það sem var undir í leiknum, ekki mikið. ÍR liðið átti enga möguleika á að komast í undanúrslitin en KR eigði með sigri litla von um að komast áfram. Þeir Eiríkur Önundarson og Kristinn Jónasson léku ekki með ÍR liðinu og hjá KR var Fannar Ólafsson í borgaralegum klæðum.
Leikurinn fór þó af stað með þó nokkrum ákafa en það var ljóst að KR liðið stefndi að kveða burt drauga ófaranna úr síðustu viku. Heimamenn náðu snemma 10 stiga forystu sem hélst út fyrsta leikhlutann. Martin Hermannson nýtti tækifærið í byrjunarliðinu vel og var að spila vel fyrir heimamenn sem og Finnur Atli Magnússon meðan Nemanja Sovic og Hjalti Friðriksson drógu vagninn fyrir ÍR.
Munurinn hélst áfram í 2. leikhlutanum en það voru þó frekar heimamenn sem juku muninn en Sovic og Robert Jarvis sáu til þess að 10 stig skildu liðin að í hálfleik 51-41. Leikurinn fram að þessu einkenntist mikið af tæknifeilum bæði í sendingum og í auðveldum færum.
Seinni hálfleikurinn reyndist hins vegar vera algjör einstefna. KR liðið náði snemma 20 stiga forskoti á meðan ÍR liðið reyndist nær fyrirmunað að skora. Miklu munaði að Jimmy Bartolotta virtist engan veginn finna sig í DHL-höllinni í kvöld. Staðan eftir þriðja leikhlutann 75-53 fyrir KR. Lokaleikhlutann var síðan formsatriði eitt en vandræðagangur ÍR liðsins fyrir framan körfuna var mikill og náði lið einungis að skora 5 stig í fjórðungnum og því samtals 17 stig í seinni hálfleiknum. Lokatölur 94-58.
Finnur Atli og Hreggviður luku leik með 19 og 16 stig en þeir nýttu saman 13 af 15 2ja stiga skotum sínum í leiknum sem var til marks um þá litlu mótspyrnu sem þeir mættu í teig ÍR-inga. Martin var með „mini“ Pavels tölur með 8 stig, 4 stoðsendingar og 10 fráköst. Aðrir áttu flestir ágætis spretti þar á meðal Kristófer Acox sem skilaði 8 stigum og 6 fráköstum.
Hjá ÍR liðinu sáu þrír leikmenn nær eingöngu um skorið en Sovic skoraði 16, Jarvis 15 en Hjalti Friðriksson átti hvað flottasta spretti fyrir Breiðhyltinga og lauk leik með 15 stig. Aðrir leikmenn liðsins náðu sér engan veginn strik en einungis 1 af 27 þriggja stiga skotum liðsins fór rétta leið.
Líkt og áður kom fram þá átti ÍR ekki möguleika á að komast áfram í keppninni og bar leikur liðsins þess merki. KR liðið sýndi á sama tíma þeim fáu áhorfendum sem lögðu leið sína í DHL-höllina að þeir kunna enn að koma boltanum ofan í körfuna. Liðið á þó litla möguleika til þess að komast áfram því Þór Þorlákshöfn tryggir sér sigur í riðlinum ef það leggur Skallagrím á morgun en leikurinn fram í Þorlákshöfn.
Punktar:
• KR liðið vann frákastabaráttuna með miklum yfirburðum 52-30
• Þriggja stiga nýting ÍR var 4% í leiknum og 25% hjá KR. Liðin tóku saman 39 þriggja stiga skot, 4 fóru ofaní. (ÍR 1/27, KR 3/12)
• Dómarar leiksins voru þeir félagar Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson og voru þeir meðal bestu manna vallarins.
• Framlag KR í leiknum var 120 stig en ÍR var með 37.
• Næsti leikur ÍR í Iceland Express deildinni er heimaleikur við Stjörnuna 8. desember en KR liðið leikur gegn Tindastól á Sauðárkróki sama dag.
• Helgina eftir fara fram 32-liða úrslitin í bikarkeppni KKÍ sem ber nafnið Poweradebikarinn. ÍR fær Keflavík í heimsókn en KR fer í Stykkishólm og mætir Mostra.
Umfjöllun/ FFS




