Adam Silver, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar, er sagður afar opinn fyrir þeirri hugmynd að stytta leiki deildarinnar úr 48 mínútum niður í 40 mínútur. Umræðan hefur skotið upp kollinum á nýjan leik vegna sífellt fleiri álagsmeiðsla meðal stærstu stjarna deildarinnar og fjarveru þeirra úr leikjum.
Samkvæmt blaðamanninum Chris Mannix hjá Sports Illustrated horfir Silver hýru auga til alþjóðlega leikfyrirkomulagsins sem notað er hjá FIBA og í EuroLeague, þar sem leiknir eru fjórir tíu mínútna leikhlutar í stað tólf mínútna. Silver hefur áður viðrað þessa skoðun opinberlega og bent á að NBA skeri sig úr á heimsvísu með 48 mínútna leikjum, auk þess sem tveggja tíma sjónvarpsútsending henti nútímaáhorfendum mun betur.
Mannix efast hins vegar um að hugmyndin sé framkvæmanleg fjárhagslega eða að hún dragi úr álagi stjarnanna:
„Ég held að Adam Silver lítist vel á hugmyndina um 40 mínútna leiki, enda horfir hann mikið til alþjóðlegs körfubolta,“ sagði Mannix. „En ég sé einfaldlega ekki hvernig það gengur upp fjárhagslega. Þetta mun heldur ekki minnka mínútur stjarnanna heldur bitna á varamönnunum. Lið gætu farið að spyrja sig hvort þau þurfi yfirhöfuð 15 leikmanna hóp í stað tíu manna.“
Alvarleg meiðsli lykilleikmanna á borð við Anthony Edwards og Jalen Williams hafa sett mikið álag og 82 leikja tímabilið í brennidepil á ný. Mannix telur nauðsynlegt að deildin grípi í taumana fyrr en síðar, enda skaði það bæði áhorfendur og vörumerkið þegar stjörnurnar eru meiddar á hliðarlínunni.




