Grindavík tók á móti ÍR í kvöld í Röstinni og verður að segja eins og er að leikurinn var ekki mikið fyrir augað. Bæði lið hittu alveg hræðilega og var 2ja stiga nýting Grindavíkur í leiknum 56,4% og 3ja stiga nýtingin var 31,8% meðan ÍR var með 46,6% nýingu í 2ja og 20% nýtingu í 3ja. Öðru hvoru komu ágætis tilþrif sem gaman var að sjá en heilt yfir var þetta nokkuð óspennandi leikur. Það sem helst vakti athygli voru margir ruðningsdómar og augljóst að leikmenn og áhorfendur eru ekki en búnir að átta sig á því hvernig nýja reglan virkar þar sem ekki er dæmdur ruðningur innan litla hringsins inn í teignum.
Jafnræði var með liðunum í 1. leikhluta og var staðan 21-17 fyrir Grindavík í lok hans. Næsti leikhluti var svipaður og sá fyrri. Grindavík leiddi en ÍR-ingar voru aldrei langt undan og var nýtingin áfram jafn slæm hjá báðum liðum. Þegar rúmar 2 mínútur voru eftir af leikhlutanum fiskaði James Bartolotta sóknarvillu á J‘Nathan Bullock. Bullock fór þá sterkt upp að körfunni þar sem Bartolotta stóð beinn og leit út fyrir að olnbogi Bullock hafi farið í andlitið á Bartolotta. Bartolotta steinlá eftir höggið, blóðugur og vankaður og samkvæmt fréttum nefbrotnaði hann og fékk heilahristing. Þetta var augljóslega óviljaverk en mikill stærðar og þyngdarmunur er á þessum tveimur mönnum og er Bullock stæltur leikmaður sem reyndi fyrir sér í NLF-deildinni fyrir nokkrum árum. Vonandi sjáum við Bartolotta sem fyrst inn á vellinum aftur. Staðan þegar þetta gerðist var 39-32 fyrir Grindavík. Eitthvað hefur þetta atvik setið í leikmönnum því aðeins ein karfa var skoruð til loka leikhlutans og var staðan í hálfleik 41-32 fyrir Grindavík.
Lítið er hægt að segja um seinni hálfleik. Grindavík leiddi áfram og hélt áfram að auka forskotið þrátt fyrir að vera að spila engan stjörnuleik. ÍR-ingar áttu öðru hvoru spretti en slæm nýting og óskynsamlegar ákvarðanir sáu til þess að þeir komust aldrei nálægt því að ógna sigri Grindavíkur. ÍR-ingar urðu fyrir öðru áfalli í seinni hálfleik þegar Sveinbjörn Classen meiddist og þurfti að víkja af velli og vonandi fyrir ÍR-inga eru þetta ekki alvarleg meiðsli. Í fjórða leikhluta fóru Grindvíkingar að spila betur saman og hafði það örugglega áhrif að tvo lykilmenn vantaði í lið ÍR-inga og sást það á leik þeirra. Leiknum lauk 87-73 fyrir Grindavík og var sigurinn verðskuldaður þrátt fyrir að leikurinn hafi ekki verið mikið fyrir augað.
Munurinn á liðunum var sá að Grindavík fékk framlag frá fleiri leikmönnum en ÍR-ingar. Ómar Örn Sævarsson átti fínan leik með 14 stig á 18 mínútum og var með 100% nýtingu í sínum skotum. Sigurður Gunnar Þorsteinsson hitti einnig ágætlega og var með 10 stig og 10 fráköst. Síðan var J‘Nathan Bullock með 13 stig og 9 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 10 stig og Þorleifur Ólafsson með 10 stig og 5 stoðsendingar. Giordan Watson stjórnaði leik liðsins vel og skoraði 9 stig og gaf 7 stoðsendingar. Einnig er nauðsynlegt að hrósa Jóhanni Árna Ólafssyni sem barðist vel um allan völlinn og spilaði vel fyrir liðið.
Hjá ÍR var Nemanja Sovic stigahæstur með 17 stig og 11 fráköst, Hjalti Friðriksson átti fínan leik með 16 stig og Kristinn Jónasson skoraði 14 stig og tók 8 fráköst. Gamla brýnið Eiríkur Önundarson var bætti síðan við 14 stigum. ÍR-ingar skoruðu 29 stig af þessum 73 í seinasta leikhluta þegar augljóst var hvernig leikurinn mundi enda og ljóst að liðið er ekki vænlegt til árangurs ef sóknarleikur liðsins verður svona í vetur en þeim til varnar þá spiluðu þeir án Bartolotta stóran hluta leiksins sem hafði greinilega áhrif á leik liðsins.
Mynd/ Úr safni: Ómar Sævarsson gerði 14 stig fyrir Grindavík í kvöld.
Umfjöllun: BG