HomeFréttirU18 kvk: Ísland fékk skell í fyrsta leik gegn Finnum

U18 kvk: Ísland fékk skell í fyrsta leik gegn Finnum

 
Þúsundvatnalandið Finnland reyndist of stór munnbiti fyrir íslenska U18 ára kvennalandsliðið þegar keppni hófst á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í dag. Þær finnsku léku magnaða vörn allan leikinn og gerðu íslenska liðinu erfitt um vik í fullar 40 mínútur. Lokatölur leiksins reyndust 104-33 Finnum í vil.
Finnar mættu ákveðnir til leiks og settu mikla og góða pressu á boltamenn Íslands sem töpuðu alls 15 boltum í leikhlutanum! Finnar komust í 7-0 áður en Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari tók leikhlé fyrir íslenska liðið.
 
Aníta Viðarsdóttir kom af íslenska bekknum og setti fyrstu stig leiksins fyrir Íslands hönd eftir fimm mínútna leik og minnkaði muninn í 13-2 en Finnar gáfu hvergi tommu eftir og leiddu 26-6 eftir fyrsta leikhluta og ljóst að þungur róður væri framundan hjá þeim íslensku.
 
Yfirburðir Finna voru ekki síðri í öðrum leikhluta sem þeir unnu 30-14 og leiddu því 56-20 í hálfleik. Íslenska liðið tapaði 15 boltum í öðrum leikhluta rétt eins og í þeim fyrsta og hafði því tapað 30 boltum í hálfleik. Dagbjört Samúelsdóttir var stigahæst í leikhléi með 4 stig.
 
Varnarleikur íslenska liðsins batnaði töluvert í síðari hálfleik en Finnar héldu áfram að setja niður þriggja stiga skotin. Hildur Björg Kjartansdóttir átti sterkar rispur hjá Íslandi í leikhlutanum og mun meiri grimmd var í íslenska hópnum. Finnar bitu þó frá sér undir lok leikhlutans og leiddu 80-28. Ekki þurfti síðar að spyrja að leikslokum en Finnar fóru með sigur af hólmi í dag 104-33 og náðu að þvinga 49 tapað bolta út úr íslenska liðinu.
 
Skellur í þessum fyrsta leik hjá U18 ára kvennaliðinu sem á morgun mæta heimakonum í Svíþjóð kl. 16.30 að staðartíma eða kl. 14.30 að íslenskum tíma. Við minnum á að www.basket.se er með mótið í beinni tölfræðilýsingu.
 
Ína María Einarsdóttir var stigahæst í íslenska liðinu í dag með 8 stig, Margrét Rósa Hálfdánardóttir gerði 5 stig og tók 6 fráköst og Dagbjört Samúelsdóttir gerði 4 stig og tók 4 fráköst. Þá voru þær Telma Lind Ásgeirsdóttir og Aníta Viðarsdóttir báðar með 3 stig í leiknum. Taka verður einnig fram að Hildur Björg Kjartansdóttir barðist af miklum krafti í leiknum, skoraði 2 stig og tók 6 fráköst.
 
 
Mynd/ Berglind Gunnarsdóttir sækir að finnsku körfunni.
 
Fréttir
- Auglýsing -