spot_img
HomeFréttirTwitter bregst við Anthony Davis til Lakers: Danny Ainge sagt að éta...

Twitter bregst við Anthony Davis til Lakers: Danny Ainge sagt að éta skít

Samkvæmt blaðamanni ESPN, Adrian Wojnarowski, hafa Los Angeles Lakers og New Orleans Pelicans komist að samkomulagi sem sendir Anthony Davis til Lakers. Í staðinn fá Pelicans Lonzo Ball, Brandon Ingram, Josh Hart, fjórða valrétt nýliðavals þessa árs og þrjá fyrstu umferðar framtíðarvalrétti.

Skiptin komu ekkert sérstaklega mikið á óvart. Þar sem að Davis og talsmenn hans gáfu út í janúar að hann vildi komast til Los Angeles. Þá tókst hinsvegar ekki að ganga frá samningum við Pelicans. Síðan þá var skipt um stjórn hjá félaginu, sem náði nú að ganga frá skiptunum.

Skiptin að sjálfsögðu risastór. Davis sem er aðeins 26 ára gamall, hefur meðal annars í sex skipti verið valinn í Stjörnuleikinn og þrisvar verið í fyrsta úrvalsliði deildarinnar.

NBA Twitter svaraði fregnunum að sjálfsögðu. Hér fyrir neðan eru nokkur skemmtileg tíst frá gærdeginum og nóttinni.

https://twitter.com/hmfaigen/status/1140058997770223616
https://twitter.com/GotEm_Coach/status/1140058913502576640
https://twitter.com/JordanClarksons/status/1140026276864036864
https://twitter.com/Kungu_NBA/status/1140024231452917760
https://twitter.com/NaturallyKatz/status/1140088493386977280
https://twitter.com/Travonne/status/1140085007832064004
Fréttir
- Auglýsing -