Þrír leikir eru á dagskrá í Bæjarins Beztu deild kvenna í körfuknattleik í dag og hefst fjörið klukkan 16:00 í Þorlákshöfn þar sem topplið Þórs Þorlákshöfn fær botnlið Skallagríms í heimsókn. Þór er á toppi deildarinnar með tíu stig eftir fyrstu sex leiki sína á meðan Skallagrímur er enn án stiga á botninum.
Klukkan 17:15 tekur Breiðablik á móti KV í Smáranum, en Breiðablik situr í sjötta sæti með sex stig og KV er í því sjöunda með fjögur stig. Lokaleikur dagsins hefst síðan klukkan 18:00 þegar Selfoss, sem situr í öðru sæti deildarinnar með átta stig, tekur á móti Njarðvík b sem er í níunda sæti með fjögur stig.
Leikir dagsins í Bæjarins Beztu deild kvenna:
- Þór Þ. – Skallagrímur kl. 16:00
- Breiðablik – KV kl. 17:15
- Selfoss – Njarðvík b kl. 18:00




