Martin Hermannsson var valinn maður leiksins þegar Alba Berlin vann öruggan 18 stiga útisigur gegn Oldenburg, 77–95, í 9. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í kvöld.
Martin átti stórleik á aðeins 15 mínútum og skoraði 14 stig auk þess að gefa 7 stoðsendingar. Hann var algjörlega óstöðvandi fyrir utan þriggja stiga línuna og hitti úr öllum fjórum þriggja stiga skotum sínum í leiknum.
Eftir kaflaskipt gengi í upphafi tímabils hefur Berlínarliðið nú tengt saman tvo sigra í röð og situr í 7. til 9. sæti deildarinnar eftir fyrstu níu umferðirnar.




