Alicante heldur sigurgöngu sinni áfram á toppi næstefstu deildar spænska körfuboltans og er áfram með fullt hús stiga eftir átta umferðir, en liðið rúllaði yfir Palma í kvöld með 34 stiga mun, 100–66.
Íslenski landsliðsmaðurinn Kristinn Pálsson nýtti mínútur sínar afar vel í leiknum. Hann lék aðeins í fimmtán mínútur en skilaði á þeim tíma ellefu stigum, þar af þremur þriggja stiga körfum, auk þess að gefa þrjár stoðsendingar.




