Sex leikir fóru fram í 9. umferð Bæjarins bestu deildar karla í kvöld, föstudaginn 27. nóvember, þar sem öll þrjú toppliðin unnu sína leiki og halda áfram harðri baráttu á toppnum.
Á Akranesi lagði topplið ÍA lið KFG að velli, 95–87, á sama tíma og Haukar unnu öruggan 109–79 útisigur gegn KV í Vesturbænum og Þór Þorlákshöfn vann stórsigur á grönnum sínum í Hamri, 122–80. Þar með eru ÍA, Þór Þorlákshöfn og Haukar áfram jöfn á toppi deildarinnar með 16 stig (átta sigra og eitt tap).
Þá sótti Selfoss mikilvægan 81–75 útisigur gegn Þór á Akureyri og Breiðablik vann 96–78 sigur á Snæfelli í Stykkishólmi, en bæði lið eru nú með 12 stig í 4.–5. sæti. Í Borgarnesi vann Skallagrímur sinn annan sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Fjölni, 103–76, í fyrsta leik Fjölnismanna undir stjórn Halldórs Karls Þórssonar.
Úrslit kvöldsins í Bæjarins bestu deild karla:
- ÍA 95 – 87 KFG
- KV 79 – 109 Haukar
- Skallagrímur 103 – 76 Fjölnir
- Snæfell 78 – 96 Breiðablik
- Þór Akureyri 75 – 81 Selfoss
- Þór Þorlákshöfn 122 – 80 Hamar





