Þór Þorlákshöfn vann yfirburðasigur á grönnum sínum í Hamri, 122–80, í 9. umferð Bæjarins bestu deildar karla í körfubolta í Icelandic Glacial höllinni í kvöld.
Heimamenn gerðu út um leikinn strax í upphafi og leiddu 33–15 eftir fyrsta leikhluta og 64–35 í hálfleik. Munurinn hélt áfram að aukast í þriðja leikhluta og fór svo að Þórsarar sigldu 42 stiga sigri örugglega í höfn fyrir framan 250 áhorfendur. Með sigrinum er Þór áfram jafnt ÍA og Haukum á toppi deildarinnar með 16 stig, á meðan Hamar er í 10. sæti með 4 stig.
Djordje Dzeletovic var atkvæðamestur í liði Þórs með 34 stig og 10 fráköst, Emil Karel Einarsson skoraði 21 stig og Sigvaldi Eggertsson átti flottan leik með 17 stig, 7 fráköst og 8 stoðsendingar. Þá átti Halldór Garðar Hermannsson tvöfalda tvennu með 14 stig og 14 stoðsendingar. Hjá gestunum úr Hveragerði var Joshua Hardiman stigahæstur með 27 stig og 9 fráköst, Birkir Máni Daðason skoraði 20 stig og gaf 8 stoðsendingar og Fotios Lampropoulos skilaði 12 stigum og 10 fráköstum.





