Stærsta stjarna bosníska landsliðsins, EuroLeague-leikmaðurinn Dzanan Musa, mun ekki spila með Bosníu og Hersegóvínu í mikilvægum leik gegn Litháen í undankeppni HM 2027 um helgina, þrátt fyrir að hafa þegar ferðast til Sarajevo til að hitta landsliðshópinn.
Ástæðan er sú að körfuknattleikssamband Bosníu og Hersegóvínu hefur einfaldlega ekki efni á að greiða tryggingagjald sem alþjóðakörfuknattleikssambandið, FIBA, krefst vegna þátttöku hans. Musa lék ekki gegn Íslandi í Laugardalshöll í gærkvöldi, þar sem Ísland vann 113–101 sigur, en til stóð að hann myndi styrkja bosníska liðið fyrir leikinn gegn Litháen.
Dzevad Alihodzic, framkvæmdastjóri bosníska körfuknattleikssambandsins, greindi frá því í dag að krafan frá FIBA hafi komið sambandinu í opna skjöldu. Um er að ræða 18.400 evrur (36.000 bosnísk mörk), eða sem nemur um tæpum þremur milljónum íslenskra króna. Upphæðin er reiknuð út frá sjúkrasögu Musa og verðmæti samnings hans við félagslið sitt, Dubai Basketball.
„Við höfum einfaldlega ekki efni á að greiða þetta, þar sem við höfum lagt út fyrir gríðarlegum kostnaði í þessum mánuði við undirbúning bæði kvenna- og karlalandsliðsins,“ sagði Alihodzic. Hann tók jafnframt fram að vilji Musa til að leika fyrir þjóð sína væri hafinn yfir allan vafa, eins og koma hans til Sarajevo sýndi, en við núverandi aðstæður væri þessi kostnaður óyfirstíganleg hindrun fyrir sambandið.
Bosnía situr á botni J-riðils undankeppninnar með þrjá sigra og sex töp eftir tapið í Laugardalshöll í gær og má illa við því að vera án síns besta leikmanns gegn Litháen.





