Baldur Már Stefánsson hefur tjáð sig um brotthvarf sitt frá körfuknattleiksdeild Fjölnis eftir að félagið tilkynnti fyrr í dag að hann hefði látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla.
Í færslu á samfélagsmiðlum í dag greinir Baldur frá því að honum hafi verið sagt upp störfum í gær og kveðst hann sár og svekktur yfir niðurstöðunni.
„Þá er komið að leiðarlokum hjá mér sem þjálfara Fjölnis eftir að mér var sagt upp störfum í gær,“ skrifar Baldur. „Ég er sár og svekktur yfir því að fá ekki tækifæri til að halda áfram með liðið í baráttunni en á sama tíma er ég þakklátur fyrir tímann hjá félaginu.“
Baldur tók við Fjölnisliðinu í nóvember 2024 og þakkar í færslunni leikmönnum og öllum í kringum félagið kærlega fyrir samstarfið, auk þess sem hann segist þykja einstaklega vænt um öll þau símtöl og skilaboð sem honum hafa borist. Hann óskar hópnum alls hins besta í framhaldinu, en Halldór Karl Þórsson stýrir Fjölni tímabundið og verður á hliðarlínunni þegar liðið sækir Skallagrím heim í Bæjarins bestu deild karla í kvöld klukkan 19:15.





