HomeFréttirÞurfum að deila boltanum og spila með ákefð

Þurfum að deila boltanum og spila með ákefð

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik undirbýr sig nú af krafti fyrir tvo mikilvæga heimaleiki í undankeppni EuroBasket sem fram fara á næstu dögum. Liðið hóf þennan þriggja leikja landsliðsglugga á frábærum útisigri gegn Írlandi í Dyflinni fyrr í vikunni og tekur næst á móti Sviss á morgun, laugardag, áður en það mætir Aserbaídsjan eftir helgina.

Viðtal við Pekka Salminen, landsliðsþjálfara Íslands, af blaðamannafundi liðsins í dag má sjá í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -