Vesturbæingar í KR tróna á toppi nýjustu kraftröðunar hlaðvarpsins Run & Gun fyrir Bónusdeild karla. Í nýjasta þættinum rýndu þeir Máté Dalmay og Tommi Steindórs í styrkleikahlutföll deildarinnar ásamt sérstökum gesti þáttarins, Gunnari Birgissyni, og gáfu út styrkleikalista fyrir öll tólf liðin.
Á hæla KR-inga í öðru sætinu kemur lið Álftaness, en Tindastóll skipar þriðja sætið. Valur situr í fjórða sæti listans og Grindavík kemur þar rétt á eftir í því fimmta. Stjarnan vermir sjötta sætið í þessari úttekt þeirra félaga.

Þegar litið er á neðri helming listans situr Keflavík í sjöunda sæti og Höttur í því áttunda. Breiðhyltingar í ÍR eru í níunda sæti og Sindri í því tíunda, á meðan Njarðvík hafnar í ellefta sæti og Ármann rekur lestina í tólfta og neðsta sætinu.
Rökstuðninginn fyrir uppröðuninni í heild sinni og ítarlega umfjöllun um liðin í Bónusdeildinni má nálgast í þættinum hér að neðan.




