Kvennalandslið Íslands heldur áfram vegferð sinni í undankeppni EuroBasket á morgun, laugardag, þegar liðið fær Sviss í heimsókn í öðrum leik sínum í þessum þriggja leikja glugga.
Íslenska liðið kom heim með sterkan sigur frá Dyflinni gegn Írlandi í farteskinu fyrr í vikunni og lýkur svo glugganum á heimaleik gegn Aserbaídsjan eftir helgina.
Viðtal við Söru Rún Hinriksdóttur af blaðamannafundi liðsins í dag má sjá í spilaranum hér að neðan.




