spot_img
HomeFréttirÞurfti að flýja frá Úkraínu og er nú á leiðinni í Blómabæinn

Þurfti að flýja frá Úkraínu og er nú á leiðinni í Blómabæinn

Nýliðar Hamars í Subway deild karla hafa samið við Maurice Creek fyrir komandi tímabil.

Maurice er 32 ára bandarískur bakvörður sem kemur til Hamars frá Olimpia í Úrúgvæ, en áður hefur hann einnig leikið fyrir lið í Danmörku, Finnlandi, Rúmeníu, Ísrael, Þýskalandi, Hollandi, Ítalíu, Dóminíska lýðveldinu og Úrúgvæ.

Líkt og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan slapp hann frá Úkraínu um það leyti sem Rússland réðst inn í landið á síðasta ári, en þar í landi lék hann fyrir úrvalsdeildarlið Mykolaiv.

Fréttir
- Auglýsing -