Sverrir Þór Sverrisson er næsti þjálfari A-landsliðs kvenna í körfuknattleik en þetta kemur fram í tilkynningu frá KKÍ og mun hann stýra liðinu í næsta verkefni liðsins sem er Norðurlandamótið sem fram fer í maí 2012.
Á heimasíðu KKÍ segir:
Sverrir er fæddur árið 1975 og hóf ungur að leika körfubolta enda íþróttin vinsæl í hans heimabæ Keflavík. Sverrir hefur alltaf vakið athygli fyrir ósérhlífni, baráttu á leikvelli og metnaði að leika góða vörn.
Sverrir lék með yngri landsliðum sem og A-landsliðinu á sínum tíma og svo var hann aðstoðarþjálfari U-20 ára landsliðs karla sem tók þátt í Evrópukeppninni fyrr á þessu ári.
Sverrir hefur verið þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur síðustu 2 ár ásamt því að hafa þjálfað yngri flokka félagsins undanfarin 5 ár. Hann þjálfaði kvennalið Keflavíkur á árunum 2004 – 2006 og varð liðið Íslandsmeistari undir hans stjórn 2005.
Aðstoðarþjálfari Sverris:
Anna María Sveinsdóttir verður aðstoðarþjálfari Sverris en þau hafa unnið saman áður með kvennalið Keflavíkur. Önnu Maríu þarf vart að kynna fyrir afrek sín í kvennaíþróttum á Íslandi en þar fer ein af sigursælustu konum allra tíma í hópíþróttum á Íslandi.
Norðurlandamót A-landsliða fer fram í Osló dagana 23. – 27. maí