Hlynur, Jakob, Ægir og félagar þurftu að sætta sig við þriðja tapið og þar með tap í einvíginu í kvöld gegn Uppsala Basket, 90-71. Hlynur var að vanda einn af lykilmönnum Sundsvall Dragons en hann setti 15 stig í kvöld og hirti 8 fráköst. Hlynur lagði því 18 framlagsstig í pottinn í kvöld sem dugði þó skammt. Fjórir leikmenn Uppsala settu 12 stig eða meira í kvöld og settu þeir 11 þrista í andlitið Sundsvall sem voru ekki jafn góðir fyrir utan línuna og settu 9 af heilum 32 skottilraunum. Jakob skoraði 11 stig í leiknum og Ægir bætti við þremur. Jakob og Hlynur voru þeir leikmenn Sundsvall sem spiluðu mest í leiknum en Hlynur fékk aðeins að hvíla í hálfa mínútu allan leikinn.
Tölfræði leiksins má finna hérna




