HomeBónus deildinBónus deild kvennaStjarnan sýndi klærnar í Keflavík – Spenna í Laugardalnum

Stjarnan sýndi klærnar í Keflavík – Spenna í Laugardalnum

Þremur leikjum er lokið í Bónus deild kvenna í kvöld þar sem Stjarnan, Haukar og Njarðvík fögnuðu öll dýrmætum sigrum.  

Stjarnan sótti tvö mikilvæg stig suður með sjó þegar liðið lagði bikarmeistara Keflavíkur með tuttugu stiga mun, 72–92. Á Ásvöllum fóru Haukar á kostum gegn KR og unnu öruggan stórsigur, 96–67. Þá hafði Njarðvík betur gegn baráttuglöðu liði Ármanns í Laugardalshöll, 81–87, í leik sem var jafn og spennandi fram á lokamínúturnar.  

Úrslit kvöldsins:

 Ármann 81 – 87 Njarðvík  

 Haukar 96 – 67 KR  

 Keflavík 72 – 92 Stjarnan

Fréttir
- Auglýsing -