HomeBónus deildinBónus deild kvennaHaukar burstuðu KR á tilfinningaþrungnu kvöldi í Ólafssal

Haukar burstuðu KR á tilfinningaþrungnu kvöldi í Ólafssal

Haukar unnu gríðarlega öruggan 29 stiga heimasigur á KR, 96–67, í 5. umferð Bónus deildar kvenna í kvöld.

Kvöldið hófst á hátíðlegum nótum á Ásvöllum þar sem Haukar heiðruðu Lovísu Björt Henningsdóttur með myndbandi og gjöfum fyrir leik, en hún lagði skóna á hilluna á dögunum eftir glæsilegan og farsælan feril með félaginu og landsliðinu.  

Haukakonur mættu gríðarlega ákveðnar til leiks og lögðu tóninn strax í upphafi með öflugum varnarleik. KR-ingar áttu í miklu basli með að finna taktinn gegn þéttum varnarvegg heimakvenna sem leiddu 27–18 eftir fyrsta leikhluta, þrátt fyrir að Sigrún hefði þurft að yfirgefa völlinn vegna tognunar snemma leiks. Í öðrum leikhluta hófst kafli mikilla sviptinga: KR tók góða 2–9 rispu og setti smá líf í leikinn, en Haukar tóku leikhlé og svöruðu af mikilli hörku með 12–0 áhlaupi. JadaKiss fór fyrir Haukaliðinu á þeim kafla og skoraði 24 stig í fyrri hálfleiknum einum, sem lauk í stöðunni 52–41.  

Í seinni hálfleik stungu Haukar endanlega af og brotlenti varnarleikur KR algjörlega. Eloise virtist pirruð og fór fljótlega af velli í þriðja leikhluta, en Haukar skoruðu í áhlaupum og juku muninn jafnt og þétt. Agnes Jóna meiddist og blæddi úr munni eftir högg og þurfti að hætta leik, en það stöðvaði ekki heimaliðið. Undir lok þriðja leikhluta negldi Tinna Guðrún Alexandersdóttir niður flautuþrist og breytti stöðunni í 73–49. Í fjórða leikhluta hélt Haukavélin áfram að sundurspila gestina úr Vesturbænum, hirti sóknarfráköst og skoraði eftir vild.  

Jadakiss fór algjörlega á kostum og átti stórkostlega þrefalda tvennu með 28 stigum, 13 fráköstum og 10 stoðsendingum. Tinna Guðrún var sömuleiðis sjóðheit með 27 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar, auk þess sem Rósa Björk Pétursdóttir skilaði 12 stigum og 6 stoðsendingum. Haukar voru sterkari í teignum og tóku 58 fráköst gegn 36 hjá KR, auk þess að gefa 32 stoðsendingar.  

Hjá KR var Dazia lokuð vel af og skilaði 15 stigum – eftir að hafa skorað 46 stig í leiknum á undan. Sara Rún Hinriksdóttir og Aaliyah bættu báðar við 15 stigum hvor, en KR virtist sakna Emmu sárt og fann engin svör í varnarleiknum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -