Stjarnan sótti dýrmæt tvö stig suður með sjó í kvöld þegar liðið lagði Íslandsmeistara Keflavíkur að velli með tuttugu stiga mun, 72–92, í 5. umferð Bónus deildar kvenna. Með sigrinum jafnaði Stjarnan topplið Grindavíkur og Njarðvíkur að stigum með 8 stig, á meðan Keflavík heldur áfram að hiksta en liðið situr í 8. sæti með aðeins einn sigur úr fyrstu fimm leikjunum.
Leikurinn var nokkuð jafn í fyrsta leikhluta þar sem gestirnir úr Garðabæ leiddu naumlega, 21–25. Í öðrum leikhluta stungu Stjörnukonur hins vegar af með frábærum varnarleik og beittum sóknaraðgerðum, héldu heimakonum í aðeins 13 stigum og leiddu í hálfleik með 14 stiga mun, 34–48. Í seinni hálfleik héldu gestirnir öruggri forystu allt til loka og unnu að lokum afar sannfærandi sigur.
Garðbæingar lögðu grunninn að sigrinum inni í teig, en Stjarnan skoraði alls 64 stig í teignum gegn 40 stigum Keflavíkur og hitti úr 64% tveggja stiga skota sinna (34/53). Þá refsaði Stjarnan grimmilega fyrir mistök Keflvíkinga og skoraði 20 stig eftir tapaða bolta (gegn 11 hjá Keflavík) auk þess að ráða lögum og lofum í frákastabaráttunni (41 gegn 33).
Eva Wium Elíasdóttir fór fyrir liði Stjörnunnar og átti frábæran leik; skoraði 24 stig, tók 5 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Xaviera Alexandria Dyer átti sömuleiðis risaleik og skilaði glæsilegri tvöfaldri tvennu með 19 stigum, 10 fráköstum og 5 stoðsendingum, auk þess sem Stina Josefine Almqvist skoraði 18 stig.
Hjá Keflavík var Thelma Dís Ágústsdóttir atkvæðamest með 21 stig og 8 fráköst. Anna Ingunn Svansdóttir bætti við 18 stigum og Amaiquen Sicilliano skoraði 12 stig og gaf 7 stoðsendingar, en það dugði skammt gegn sjóðheitum Garðbæingum í kvöld.





