HomeFréttirÁ flæðiskeri staddur eftir að hafa þénað 200 milljónir dollara í NBA

Á flæðiskeri staddur eftir að hafa þénað 200 milljónir dollara í NBA

NBA-goðsögnin Paul Pierce glímir við verulega fjárhagsörðugleika og heldur því fram að hann sé búinn með peningana samkvæmt dómskjölum sem miðillinn TMZ hefur undir höndum.

Pierce segir tekjur sínar hafa hrunið eftir að samningi hans sem sérfræðingur hjá Fox Sports lauk, en þar þénaði hann um 119 þúsund dollara á mánuði (um 16,5 milljónir króna). Á sama tíma situr hann uppi með um 48 þúsund dollara í mánaðarlegan framfærslukostnað, auk samtals 48 þúsund dollara á mánuði í meðlags- og makagreiðslur til fyrrum eiginkonu sinnar, Princess Santiago. Aðrar tekjur hans námu aðeins um 23 þúsund dollurum í síðasta mánuði.

Lögmaður Pierce lýsir stöðunni þannig að kappinn sé að „drukkna fjárhagslega“ og fer fram á að dómstóll hafni kröfu Santiago um að hann greiði 50 þúsund dollara til viðbótar í lögfræðikostnað og fjármálarannsókn á högum hans.

Málið vekur mikla furðu í ljósi þess að hinn 48 ára gamli Pierce þénaði um 200 milljónir dollara í leikmannalaun á 19 ára ferli sínum í NBA, þar sem hann varð meistari og MVP í úrslitum með Boston Celtics árið 2008.

Fréttir
- Auglýsing -