HomeFréttirStjarnan stillir Snæfell upp við vegg, einum sigri frá úrslitaeinvíginu

Stjarnan stillir Snæfell upp við vegg, einum sigri frá úrslitaeinvíginu

Stjarnan stimplaði sig heldur betur inn í undanúrslitarimmuna við Snæfell með sterkum sigri í Ásgarði í kvöld. Snæfell leiddi framan af en Stjarnan náði undirtökunum undir lok fyrri hálfleiks og í byrjun þriðja. Eftir það þurftu gestirnir að elta og þrátt fyrir að jafna nokkrum sinnum tók Stjarnan alltaf til sinna ráða og fóru á endanum með 6 stiga sigur, 93-87.

 
Jovan Zdravevski fór hreint út sagt á kostum í leiknum og í raun ekki til orð til að lýsa sóknarleik hans í kvöld. Hann skoraði heil 38 stig og hirti einnig 10 fráköst. Hann setti niður 7 þriggja stiga skot af 10 og 7 af 8 tveggja stiga skotum ásamt því að vera fullkominn á vítalínunni. Næstur í liði Stjörnunnar var Renato Lindmets með 15 stig og 7 fráköst og Justin Shouse með 13 stig og heilar 15 stoðsendingar. Í liði Snæfells var Jón Ólafur Jónsson 24 stig og 8 fráköst en næstir voru Pálmi Sigurgeirsson með 22 stig og Ryan Amaroso með 15 stig.
 
Gestirnir mættu mun betur stemmdir til leiks og voru komnir 6 stigum yfir þegar rétt rúmlega þrjár mínútur voru liðnar af leiknum, 2-8. Snæfell var hins vegar að leggja mikið púður í að trufla andstæðinginn og standa í smá stimpingum sem kom sér vel fyrir stjörnuna en þeir voru búnir að jafna í stöðunni 13-13 þegar þrjár mínútur voru eftir af leikhlutanum. Stjarnan komst svo yfir í fyrsta skiptið í leiknum í stöðunni 18-17 þegar Jovan Zdravevski setti niður þrist með eina og hálfa mínútu á klukkunni. Þegar fyrsta leikhluta var lokið hafði Snæfell yfir, 20-22. 
 
Snæfell varð fyrir áfalli strax á annari mínútu annars leikhluta þegar Ryan Amaroso haltraði inní klefa eftir slæma lendingu í þriggja stiga skoti sem kom Snæfell yfir 22-25. Ryan vildi meina að leikmanður stjörnunnar hafi stigið undir sig þegar hann lenti og var ekki ánægður. Snæfell nýtti næstu mínútur mjög vel og þegar rúmlega þrjár mínútur voru liðnar af leikhlutanum voru þeir komnir 7 stigum yfir, 24-31. Justin Shouse hafði þá fengið hvíld og virtist það bitna full mikið á sóknarleik Stjörnunnar. Mínútu seinna tók Teitur leikhlé fyrir Stjörnuna sem var þá komið 10 stigum undir, 24-34. Fannar Helgason var kominn með sýna þriðju villu strax þegar annar leikhluti var hálfnaður og fékk hann því að hvíla sig það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Snæfell gaf lítið eftir og hélt því 10 stiga forskoti sem þeir höfðu náð næstu mínúturnar. Sean Burton setti meðal annars svakalegan þrist sem var nær miðju en þriggja stiga línunni, 29-40.   Stjarnan var komin í bónus snemma í öðrum leikhluta og fengu því nokkrum sinnum auðveld stig af línunni þegar leikmenn Snæfells brutu af sér í sókn eða á miðjum velli. Emil Þór Jóhannsson lék eftir leik Fannars og fékk sína þriðju villu áður en öðrum leikhluta var lokið og fékk því að hvíla sig seinustu mínúturnar. Stjarnan datt í gang þegar leið á leikhlutan skoraði 10 stig gegn 1 stigi Snæfells á lokamínútunum. Snæfell lokatækifæri fyrri hálfleiks þegar 2,7 sekúndur voru eftir en þá tók Ingi Þór Steinþórsson leikhlé til þess að finna rétta skotið. Það var Jón Ólafur Jónsson sem tók skotið en það geigaði og því munaði aðeins 2 stigum á liðunum í hálfleik, 39-41.
 
Stigahæstur í hálfleik hjá Snæfell var Pálmi Sigurgerisson með 14 stig en næstir voru Zeljko Bojovic með 12 stig og Ryan Amaroso með 6 stig. Hjá Stjörnunni var Jovan Zdravevski stigahæstur með 14 stig en næstir voru Justin Shouse með 11 stig og Renato Lindmets með 7 stig. 
 
Tveir heppnir drengir settu niður Hagkaupsskot Stjörnunnar í hálfleik og fengu að sögn kynni leiksins að launum 10 þusund króna úttekt í Hagkaup. Ekki slæm búbót það.
 
Fannar Helgason lét villuvandræðin ekki á sig fá og kom Stjörnunni yfir strax eftir hálfa mínútu af þriðja leikhluta, 42-41. Liðin skiptust á að leiða leikinn næstu mínúturnar og þegar þrjár mínútur voru liðnar af leiknum hafði Snæfell yfir, 47-48. Bæði lið voru sjóðandi heit og settu niður hvern þristinn á fætur öðrum og höfðu menn vart undan að setja stigin á töfluna. Þegar leikhlutinn var hálfnaður höfðu heimamenn yfir, 54-51. Stjarnan setti niður nokkur stór skot á næstu mínútunni og höfðu náð 7 stiga forskoti, 58-51 þegar Ingi Þór tók leikhlé fyrir Snæfell. Þeir létu ekki þar við sitja heldur bættu í og voru komnir með 13 stiga forskot þegar Ingi Þór tók aftur leikhlé fyrir gestina, 64-51, þegar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Snæfell virtist ekki ætla að gefa þeim meira en það þangðað til að Jón Ólafur braut á Jovan Zdravevski í þriggja stiga skoti sem hann setti niður og vítið að auki. Stjarnan var því kominn í 15 stiga forskot, 68-53. Heimamenn tóku svo leikhlé þegar 40 sekúndur voru eftir af þriðja leikhluta og munurinn aftur kominn niður í 11 stig, 68-57. Snæfell skoraði hins vegar seinustu 2 stig leikhlutans af vítalínunni og munaði því 9 stigum þegar einn leikhluti var eftir, 68-59. 
 
 
Snæfell pressaði boltann stíft strax frá fyrstu mínútu fjórða leikhluta og það var ljóst að ekkert yrði gefið eftir. Stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra svo það fór ekki á milli mála að úrslitakeppnin væri í fullum gangi. Pressan skilaði sér vel því munurinn var kominn niður í 4 stig þegar tvær mínútur voru liðnar af leikhlutanum, 71-67.   Stjarnan svaraði því og voru fljótt komnir aftur með þægilegt forskot. Spennan í húsinu var svakaleg og öskrin í stuðningsmönnum beggja liða það eina sem heyrðist. Pressa Snæfells virkaði vel en þeir stálu boltanum trekk í trekk. Þeir voru því búnir að jafna þegar fjórar og hálf mínúta var liðin af fjórða leikhluta, 78-78. Snæfell komst svo yfir í stöðunni 81-82 þegar Jón Ólafur setit niður tvö víti. Stjarnan komst strax aftur yfir með tveimur þristum frá Jovan sem var vægast sagt svakalegur og virtist sem á köflum væri ekkert sem gæti truflað skotið hans, 87-82. Þannig stóðu leikar þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum og spennustigið í húsinu var orðið hættulega hátt. Þegar sekúndurnar byrjuðu að tikka á klukkunni munaði 3 stigum á liðunum, 87-84 og Snæfell hélt í sókn. Jón Ólafur fór á línúna en nýtti aðeins annað skotið. Stjarnan tók þá leikhlé með 49 sekúndur eftir, 87-85. Stjarnan komst svo 4 stigum yfir með glæsilegu baráttustigi frá Marvin Valdimarssyni þegar hann fór upp í frákastið ásamt meirihluta vallarins og náði að blaka boltanum ofaní, 89-85. Ingi Þór tók svo leikhlé fyrir gestina þegar 16 sekúndur voru eftir af leiknum og útlitið ekki bjart. Jón Ólafur setti niður tvö víti og Stjarnan hélt í sókn. Snæfell braut strax á Justin Shouse sem setti bæði skotin niður og fór langleiðina með að tryggja sigur heimamanna. Jón Ólafur Jónsson tók lokatilraun gestana sem geigaði og endaði leikurinn því á troðslu frá Renato Lindemets um það leiti sem lokaflautan gall og 6 stiga sigur Stjörnunnar staðreynd, 93-87.
 
Gísli Ólafsson
 
Fréttir
- Auglýsing -