Á dögunum gengu ÍR-ingar frá samningi við Nemanja Sovic en hann hefur leikið með liðinu síðastliðin tvö tímabil. Nemanja hefur leikið á Íslandi í 7 ár og er orðinn stór hluti af íslenskum körfuknattleik. Hann átti eitt sitt besta tímabil sl. vetur og þrátt fyrir að vera á besta aldri virðist hann enn eiga nóg inni.
,,Við erum afar ánægðir að hafa Nem innan okkar raða. Við viljum stöðuleika, koma í veg fyrir of miklar mannabreytingar á milli tímabila og það að semja við Nem er hluti af því. Nemanja er einn skemmtilegasti sóknarleikmaður deildarinnar og er alltaf mikið áhyggjuefni andstæðinga okkar. Hann er mikill styrkur fyrir okkar lið,“ sagði Gunnar Sverrisson þjálfari ÍR-inga sem einnig framlengdi samning sinn við ÍR á dögunum.
ÍR datt út í 8-liða úrslitum eftir dramatískan oddaleik gegn Keflavík og Sovic lauk tímabilinu með ÍR með 20,6 stig og 6,4 fráköst að meðaltali í leik.
Mynd/ Nemanja Sovic og Gunnar Þór Gunnarsson formaður körfuknattleiksdeildar ÍR.




