spot_img
HomeFréttirSkotbúðir Brynjars og Ármanns í Dymbilvikunni - Hefjast á morgun

Skotbúðir Brynjars og Ármanns í Dymbilvikunni – Hefjast á morgun

Það verður líf og fjör í Laugardalshöllinni í Dymbilvikunni þegar Skotbúðir Brynjars og Ármanns fara fram. Skotbúðirnar hafa verið vel sóttar síðastliðin ár og alltaf verið mikið fjör. Í ár verða þær tvískiptar. 2. – 6. bekkur verður saman og svo 7. – 10. bekkur.

Hér fyrir ofan er ein mynd af hópnum sem mætti í fyrra. Þá var frábær stemming í Skotbúðunum og vel tekið á því. Þrusumæting þar sem krakkarnir fengu góð ráð frá mörgum af okkar albestu skyttum.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á [email protected], en allar frekari upplýsingar er að finna hér fyrir neðan eða á Facebook síðu Körfuboltaþjálfunar Brynjars.

Fréttir
- Auglýsing -