spot_img
HomeFréttirSkilvirkni liða í IEX deildunum

Skilvirkni liða í IEX deildunum

Ruslid.blogspot.com birti athyglisverða grein á dögunum um skilvirkni liða í Iceland Express deildunum. Þar varð niðurstaðan m.a. sú að Stjarnan væri skilvirkasta sóknarliðið í Iceland Express deild karla.
Við birtum hér brot úr greininni á Ruslinu en smella má hér til að sjá greinina í heild sinni:
 
Tölfræðingurinn Dean Oliver þróaði fyrir allnokkru síðan aðferð til að meta fjölda leikinna "sókna" (e. possessions) í hverjum leik og svo skilvirni sóknar og varnar út frá þeirri tölu. Hef ég ákveðið að heimfæra þetta hæfnismat á liðin í Iceland Express deildunum.
 
Skv. skilgreiningu Oliver hefst ekki ný sókn þegar skotklukka er endursett. Hugsa má að sókn sé ein ferð upp völlinn og ný sókn hefjist svo þegar hitt liðið fer til baka. Að þessu gefnu má álykta að hvort lið um sig fái u.þ.b. jafnmargar sóknir í hverjum leik.
 
Aðferð Oliver byggir á basic leiktölfræði hvers liðs og andstæðings, þar sem skottilraunir, fráköst, tapaðir boltar og vítaskot mynda umrætt gildi. Ég ákvað að nýta mér einfaldari útgáfuna af þessari formúlu þar sem ég hef ekki enn fengið þá flóknari til að skila eðlilegum gildum.
 
www.ruslid.blogspot.com
  
Fréttir
- Auglýsing -