HomeFréttirSkarphéðinn: Diesel-vélarnar fara í gang þegar líður á vorið

Skarphéðinn: Diesel-vélarnar fara í gang þegar líður á vorið

 
,,Diesel-vélarnar fara aldrei í gang fyrr en líður á vorið,“ svaraði Skarphéðinn Freyr Ingason kátur eftir sigur KR á Keflavík oddaleik liðanna í kvöld. Skarphéðinn var í byrjunarliðinu í kvöld í fyrsta sinn í seríunni og líkti sér við Diesel-vél aðspurður um það hvað kæmi til að Hrafn hefði telft honum fram í byrjunarliðinu í kvöld.
,,Við vissum að við ættum miklu meira inni í vörninni og ég kem inn í byrjunarliðið til að byrja kannski með aðeins meiri hraða og kraft í varnarleiknum. Sóknarlega vissum við að við ættum að geta skorað nánast þegar við vildum því þeir voru búnir að gefa okkur opin þriggja stiga skot um allan völl í síðustu leikjum. Við höfðum ekki miklar áhyggjur af sókninni þó við hefðum vissulega verið stundum soldið staðnaðir gegn svæðisvörninni,“ sagði Skarphéðinn sem hafði þó engin sérstök skilaboð handa þeim sem voru farnir að efast um að KR kæmist í gegnum einvígið.
 
,,Þetta eru tvö topplið, Keflavík er með hörku mannskap, marga landsliðsmenn og tvo erlenda leikmenn svo við vorum ekki að vanmeta þá. Menn mega heldur ekki vanmeta okkur, við slátrum Keflavík í tveimur fyrstu leikjunum og vissum alveg að við ættum að geta tekið þá í oddaleik,“ sagði Skarphéðinn sem heldur nú inn í sögulega rimmu gegn Stjörnunni. Í fyrsta sinn í sögu úrslitakeppninnar verður ekkert lið frá Suðurnesjum í úrslitum.
 
,,Þetta verður bara spennandi, ég held bara að allir á landinu fagni nema Suðurnesjamenn, eigum við ekki að segja að einokinu sé lokið og nýtt tímabil að hefjast,“ sagði Skarphéðinn en þó hann hafi ekki haft mikinn tíma til að hugsa um komandi úrslitaeinvígi gegn Stjörnunni spurðum við hann samt út í rimmuna sem er framundan.
 
,,Þeir eru með hörku mannskap, hörku góða útlendinga og Stjarnan slátraði Snæfell. Auðvitað verður úrslitaserían aldrei neitt annað en hörkugóð sería. Við erum bara að missa okkur úr spenningi og við erum ekkert saddir,“ sagði Skarpi en er hann ekki kominn í byrjunarlið KR til að vera?
 
,,Eins og ég segi, maður er hokinn af reynslu, sigurtilfinningin er það sem maður er að vonast eftir í þessu og ef við vinnum hvern einasta leik þá er mér sama hvort ég… nei ég segi ekki ,,að spila ekki neitt“ en maður vill leggja eitthvað af mörkum og það er aðalmálið að sigra!“
 
Fréttir
- Auglýsing -