HomeFréttirSiskauskas hleypur ekki undir bagga með Litháum

Siskauskas hleypur ekki undir bagga með Litháum

 
Evrópumeistaramótið í körfuknattleik hefst þann 31. ágúst næstkomandi í Litháen og með aðeins 98 daga til stefnu horfa heimamenn á einn sinn reyndasta leikmann og vonast eftir endurkomu. Ramunas Siskauskas, leikmaður CSKA Moskvu, sagði eftir tap Litháen um bronsið gegn Argentínu á Ólympíuleikunum 2008 að hann væri hættur með landsliði Litháen en nú þegar búist er við því að tvo sterka leikmenn vanti í hópinn beinast spjótin að Siskauskas.
Þeir Linas Kleiza og Jonas Maciulis eru báðir að glíma við meiðsli og óvíst hvort þeir verði með Litháen á EM. ,,Ég sagði eftir Ólympíuleikana í Peking að ég væri á förum frá landsliðinu. Nú heyri ég að formaður litháíska sambandsins sé að biðja mig um að snúa aftur, ég er hættur með landsliðinu og það breytir ekkert þeirri ákvörðun,“ sagði Siskauskas fyrr í vikunni.
 
Í augnablikinu eru Litháar því fjarri því með sitt sterkasta lið á EM í ágúst en allt sumarið er framundan svo enn geta komið skriður á hlutina í herbúðum heimamanna.
 
Litháar eru í A-riðli með Pólandi, Bretlandi, Tyrkjum og Spánverjum og þá á eitt lið enn eftir að tryggja sér sæti í riðlinum en umspili um laust sæti á EM í ágúst lýkur síðar í sumar.
 
Mynd/ Siskauskas stígur ekki inn í litháíska liðið í sumar.
 
Fréttir
- Auglýsing -