Sigurður Ingimundarson verður næsti þjálfari meistaraflokks Keflavíkur í körfuknattleik. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Keflavík. www.vf.is greinir frá.
Sigurður þekkir vel til í herbúðum Keflavíkur. Hann var síðast þjálfari Njarðvíkur en hætti með liðið á yfirstandandi leiktíð síðasta vetur.




