spot_img
HomeFréttirSigrún Sjöfn: Stuðningsmenn Keflavíkur til skammar - Aldrei upplifað annað eins

Sigrún Sjöfn: Stuðningsmenn Keflavíkur til skammar – Aldrei upplifað annað eins

Keflavík sigraði Skallagrím í fjórðu umferð kvenna eftir framlengdan leik þar sem Keflavík hafði yfirhöndina nánast allan leikinn.

 

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir leikmaður Skallagríms átti fínan leik en var ekki ánægð með stuðningsmenn Keflavíkur og lét þá heyra það með facebook færslu eftir leik.

 

Þar segir hún frá því að stuðningsmennirnir hafi haft uppi persónulegar svívirðingar í garð síns og liðsfélaga sína úr Borgarnesi.

 

Skjáskot af færslu Sigrúnar má sjá hér að neðan:

 

 

Sigrún var greinilega mjög ósátt útí stuðningsmennina og segir þá hreinlega hafa verið sér og félagi sínu til skammar. Sigrún hefur spilað ansi oft í Keflavík með Haukum, KR og Grindavík og ætti því að hafa góðan samanburð.

 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -