HomeBónus deildinBónus deild karlaFór á rangan flugvöll og missir af leik

Fór á rangan flugvöll og missir af leik

Bandaríski leikmaðurinn Jelani Simmons verður að öllum líkindum ekki með Íslandsmeisturum Vals gegn Hetti á Egilsstöðum í 7. umferð Bónusdeildar karla í kvöld klukkan 19:15, eftir að hann mætti á rangan flugvöll í hádeginu í dag.

Samkvæmt frétt mbl.is varð einn erlendra leikmanna Vals eftir í bænum þegar liðið flaug austur frá Reykjavíkurflugvelli, og Vísir greindi í kjölfarið frá því að um Simmons væri að ræða. Simmons, sem býr í Valshverfinu rétt við Reykjavíkurflugvöll, hélt að flogið yrði frá Keflavíkurflugvelli og mætti þangað í staðinn.

Eitt kvöldflug er til Egilsstaða í dag og lendir sú vél um klukkan 19:00, skömmu fyrir leik, en uppselt er í vélina. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði við Vísi að reynt yrði að koma honum með en hann ætti ekki von á því að það gengi upp. Simmons gekk til liðs við Val í síðasta mánuði og var stigahæstur í síðasta leik liðsins gegn Álftanesi með 22 stig.

Fréttir
- Auglýsing -