HomeBónus deildinBónus deild karlaKominn með leikheimild með Keflavík

Kominn með leikheimild með Keflavík

Bakvörðurinn Ingvi Þór Guðmundsson hefur fengið félagaskipti yfir í Keflavík úr Ármanni samkvæmt félagaskiptalista Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ).

Eins og greint var frá hér á síðunni á dögunum hafði orðrómur verið uppi um að Ingvi Þór væri á leið í Blue-höllina eftir að hann yfirgaf herbúðir Ármanns, en hann sameinast þar bróður sínum, Braga Guðmundssyni, sem gekk til liðs við Keflavík frá Ármanni síðastliðið sumar.

Ingvi Þór, sem er 28 ára gamall og uppalinn í Grindavík, lék fimm leiki með Ármanni í upphafi yfirstandandi tímabils í Bónusdeild karla og skoraði í þeim 12,0 stig, tók 3,6 fráköst, gaf 4,2 stoðsendingar og stal 2,0 boltum að meðaltali á rúmum 27 mínútum í leik. Á ferli sínum hefur hann einnig leikið með Grindavík, Þór Akureyri, Haukum og Þrótti Vogum.

Keflavík situr í fimmta sæti Bónusdeildar karla með 8 stig eftir fyrstu sex umferðirnar og mætir Tindastóli í sjöundu umferðinni annað kvöld, föstudaginn 20. nóvember.

Fréttir
- Auglýsing -