Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) hefur opnað fyrir miðasölu á leik íslenska karlalandsliðsins gegn Bosníu í undankeppni Heimsmeistaramótsins, sem fram fer í Laugardalshöll fimmtudaginn 26. nóvember næstkomandi.
Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er jafnframt síðasti heimaleikur A-landsliðs karla á þessu ári. Bæjarins Beztu Pylsur munu sjá um veitingasölu og stemningu í höllinni í samstarfi við Sprite.
Miðasala á viðburðinn fer fram í gegnum miðasöluvefinn Stubb.




