spot_img
HomeFréttirSigmundur Már og Björgvin dæma fyrir FIBA Europe

Sigmundur Már og Björgvin dæma fyrir FIBA Europe

FIBA dómarar okkar, Sigmundur Már Herbertsson og Björgvin Rúnarsson, verða á ferð og flugi á næstunni í dómaraverkefnum á vegum FIBA Europe.
Sigmundur Már
Í gærkvöldi dæmdi Sigmundur Már Herbertsson leik í Eurochallange karla, viðureign Antwerp Giants og BC Enisey (Rússlandi) sem fram fór í Belgíu sem Antwerp vann 73-69.
 
Antwerp Giants 73-69

18-14, 12-15, 22-17, 21-23

BC Enisey

 

Date: 29.11.2011, 20:00h Group:  E Venue:   Antwerp (BEL) Spectators: 3000
Referees:  Vaclav Lukes (CZE), Sigmundur Herbertsson (ISL), Toni Rodriguez (GER)
 
Sigmundur mun svo á næstunni dæma tvo leiki í desember, fyrst í Euroleague kvenna viðureign VICI Aistes gegn Ros Casares frá Spáni, í Litháen þann 7. desember og verður Sigmundur aðaldómari í leiknum.
 
Hann mun svo dæma aftur í Eurochallange karla í Hollandi þann 13. desember leik ZZ Leiden gegn Armia (Georgíu).
 
Björgvin
Björgvin mun svo á fimmtudaginn kemur, þann 1. desember dæma í Eurocup kvenna í Danmörku, leik SISU og Arras (Frakklandi) en Hrannar Hólm er þjálfari SISU kvenna. Í liðinu leika meðal annars Kiki Lund sem lék með Haukastúlkum hér heima og Iben Soltau, en hún er systir Thomas Soltau, sem lék með Keflavík árið 2007, en hann er jafnframt aðstoðarþjálfari Hrannars.
 
Hægt er að fylgjast með þessum leikjum í beinni tölfræðilýsingu á FIBA Europe og einnig er iðulega leikur vikunnar beint í opinni dagskrá á FIBATV að auki.
 
www.kki.is
 
  
Fréttir
- Auglýsing -