HomeFréttirSíðasti leikur Jóns í Granada

Síðasti leikur Jóns í Granada

 Í síðustu viku lék Jón Arnór sinn síðasta leik á þessu tímabili á Spáni í bili og sinn síðasta leik fyrir Granada liðið sem féll. Liðið lék gegn fyrna sterku liði Gran Canaria í síðasta leik og í samstarfi við Iceland Express sendu Karfan.is mannskap til að fylgjast með þessum síðasta leik. 
 Það var nokkuð aumt yfir síðustu æfingu liðsins fyrir leik sem undirritaður mætti á. Liðið var fallið og leikmenn augljóslega komnir með hugann í sumarfríið.  En það var einn leikur eftir og hann var daginn eftir. Okkar maður var nokkuð rólegur og talaði um að rútínan hans væri svo sem engin sérstök. 
 
"Ég er ekki þannig að ég borði einhverja sérstaka máltíð fyrir leik eða leggi mig eða fer í einhverja sérstaka sokka.  Ég reyni bara að borða vel og rétt, og ef ég er þreyttur þá legg ég mig örlítið en ef ekki þá geri ég það ekki.  Ég er hef prófað bæði með misjöfnum árangri þannig að það er í raun engin föst rútína hjá mér." sagði Jón á leikdag. 
 
Jón hafði verið hjá Granada í 2 ár og nú var komin tími á að færa sig á nýjar slóðir. Stuðningsmenn Granada liðsins kunnu vel að meta það að Jón hafi komið aftur til liðsins eftir síðasta tímabil og haldið tryggð við liðið þrátt fyrir erfiða fjárhagstöðu þess. Kappinn var hylltur vel í kynningunni og í raun alltaf þegar kappinn kom við knöttinn. 
 
Gran Canaria liðið átti möguleika á að komast í fjórða sætið með sigri á Granada á meðan heimamenn höfðu í raun engu að spila fyrir. Það var því raunin að frá upphafsmínútum leiks voru það gestirnir sem höfðu leikinn í sínum höndum. Drifnir áfram af stigahæsta manni deildarinnar, Jaycee Wallace (sem hefur skrifað undir risa samning við Real Madrid fyrir næsta tímabil) fóru Gran Canaria með stórsigur af hólmi. 
 
Okkar maður sýndi ágætis takta en náði sér ekki fyllilega á strik í þessum leik.  Eftir leik hrópuðu stuðningsmenn Granada "STEFANSSON" á meðan við tókum viðtal við hann. Jón endaði sinn tíma í Granada með því að "knúsa" nokkra vel valda og grjótharða stuðningsmenn og augljóst að kappinn hefur unnið hug og hjörtu Granada búa. 
 
Í viðtali eftir leik sem er komið á Karfan TV skýrir Jón í stuttu máli hvað framundan er hjá kappanum og um stóra stund sem nálgast óðfluga hjá honum.  Einnig er hægt að kíkja á myndasafn frá leiknum hér.
 
Fréttir
- Auglýsing -