Sex leikir á dagskrá VÍS bikarkeppninnar í dag

Sex leikir fara fram í VÍS bikarkeppnum karla og kvenna í dag.

Í VÍS bikar karla tekur Stjarnan á móti Þór í Garðabæ, Haukar heimsækja Þór á Akureyri, Snæfell fær Hött í heimsókn í Stykkishólm, KR og Ármann mætast á Meistaravöllum og í Skógarseli tekur ÍR á móti Tindastól.

Í 32 liða úrslitum VÍS bikar kvenna er svo aðeins einn leikur, en í honum tekur KR á móti Njarðvík á Meistaravöllum.

Hérna verður lifandi tölfræði frá VÍS bikarkeppni karla

Hérna verður lifandi tölfræði frá VÍS bikarkeppni kvenna

Leikir dagsins

VÍS bikar karla – 32 liða úrslit

Stjarnan Þór – kl. 16:00

Þór Akureyri Haukar – kl. 18:00

Snæfell Höttur – kl. 18:15

KR Ármann – kl. 19:00

ÍR Tindastóll – kl. 19:15

VÍS bikar kvenna – 32 liða úrslit

KR Njarðvík – kl. 16:30